fbpx

Author: gudrun

Margir tengja gulan blaðlit við einhvers konar skortseinkenni hjá plöntum en svo þarf alls ekki að vera. Hjá ýmsum plöntutegundum eru nefnilega til afbrigði eða yrki með gulleit blöð. Þessi gulleitu blöð lýsa upp umhverfið og gefa skemmtilega fjölbreytni í grænu garðumhverfinu. Yfirleitt er guli...

Blómstrandi bláklukka Það er alltaf eitthvað heillandi við himinbláar bláklukkur, hvort sem maður rekst á íslensku bláklukkuna í gönguferð á Austurlandi eða aðrar bláklukkutegundir í görðum landsmanna. Fjölmargar tegundir eru í ræktun af bláklukkum og eru þær af öllum stærðum og gerðum. Hægt er að finna...

Sunnukvistur er glæsilegur hvítblómstrandi runni með langar og bogadregnar greinar. Blóm sunnukvists eru fremur lítil en mörg saman í hvelfdum hálfsveip. Þessir blómsveipir raða sér eftir endilöngum bogadregnu greinunum þannig að þær eru hreinlega þaktar blómum. Runninn verður allt að tveir metrar á hæð og...

Fíflar og sóleyjar eru sannkallaðir vorboðar með sína skærgulu blómliti sem gleðja augað eftir langan vetur. Þessar duglegu plöntur eru þó oftast mjög neðarlega á vinsældarlista garðeigenda og hafa þær raddir heyrst á förnum vegi að fólk þoli hreinlega ekki þessar gulu frekjur sem mæta...

Smám saman eru fleiri og fleiri garðeigendur farnir að jarðgera allt lífrænt efni sem fellur til í garðinum. Því fylgja margir kostir og einn sá stærsti er að þannig myndast molta sem hægt er að nota aftur í garðinn. Moltan er yfirleitt mjög næringarrík og...

Um leið og frost fer úr jörðu á vorin er tilvalið að nýta tímann í að undirbúa matjurtagarðinn undir matreiðsluævintýri sumarsins. Eftir veturinn er jarðvegurinn oft samanþjappaður og nauðsynlegt að stinga jarðveginn upp til að koma í hann góðri loftun. Reyndar eru sumir þeirrar skoðunar...

Flestir garðeigendur eru yfirleitt strax um páskaleytið orðnir óþreyjufullir eftir grænu og blómstrandi sumri. Um leið og sólin lætur sjá sig fyllast garðar og sumarbústaðalönd af iðnu fólki sem klippir runna og tré, hreinsar beð og sáir fyrir sumarblómum og matjurtum. Hins vegar eru veðurguðirnir...

Í mörgum görðum leynast skuggalegir staðir þar sem venjulegir runnar þrífast illa eða alls ekki. Sólin virðist kjósa að sneiða hjá þessum stöðum og skín þeim mun meira annars staðar. Flestir garðeigendur á Íslandi kjósa að vera sólarmegin í lífinu og þess vegna nýtast svona...

Félag garðplöntuframleiðenda stendur að átaksverkefninu Þinn garður – þín kolefnisbinding til að auka áhuga, þekkingu og þátttöku almennings í ræktun gróðurs með tilliti til kolefnisbindingar. Með því vill félagið vekja vitund um að allur gróður og græn svæði binda kolefni og allir geta lagt sitt af...